|
Könnun
Hvenær eigum við að fara í riverrafting, ja eða bara óvissuferð?
Maí
1 atkvæði
Júní
1 atkvæði
Júlí
8 atkvæði
Ágúst
11 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 21
|
29.07.2009 08:56:24 / jóhanna
Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri einhver stemmning fyrir því að taka eins og einn laugardag í að kíkja á Stokkseyri, í svona dagsferð? hehe var að skoða blað þar sem var verið að auglýsa Stokkseyri og fannst þetta svoldið áhugavert. Gætum hist á Olís norðlingaholti og sameinað í bíla, keyrt svo á Stokkseyri og kíkt á Draugasetrið og álfa, trölla og norðurljósasafnið og endað svo daginn á góðum kvöldmat á veitingastaðnum Við fjöruborðið og snætt okkur á humar (þeir sem vilja) Endilega commentið og látið mig vita hvort það sé einhver stemmning fyrir þessu, getum svo ákveðið dagsetningu.
Kv. Jóhanna
»
09.06.2009 15:05:58 / sigga
Hæ stelpur þá er maður komin heim frá Ástralíu og farin að sakna ykkar alveg hrikalega mikið hehe ég var að spá hvort að það væri ekki komin tími á hitting eða hvort að þið væruð til í að gera eitthvað sniðugt um helgina? ég væri til í að bjóða ykkur heim til mín eða svo er Emilía hjá Orra um helgina og það væri gaman að gera eitthvað skemmtilegt... hvað segiði um það? hver er laus um helgina ? kv. Sigga
»
27.04.2009 21:31:00 / katrin
Laugardaginn 16. maí verða úrslitin í í Júróvisjón. Heima hjá mér verður smá partý. Mæting um það leiti sem júróvisjónið byrjar
»
24.03.2009 21:11:50 / iris
»
17.02.2009 13:54:26 / jóhanna
Ég var að spá, ég get örugglega haldið hittinginn í apríl. Eða get svo sem líka gert það í mars, en apríl myndi henta betur Allavega eins og er, en svo auðvitað gæti það breyst, veltur kannski svoldið á því hvort ég verð í vinnu eða ekki Vúhú svo gaman að lifa í svona óvissu...
En svo langar mig líka mega mikið í sumarbústað, fyrst maður kemst ekkert til útlanda á næstunni.... Þannig að ef einhver er sammála mér þá endilega látið mig vita 
kv. Jóhanna
»
08.01.2009 18:48:01 / jóhanna
Hæ, Var búin að senda ykkur öllum á facebook um þetta, en þar sem ég var sú eina sem fékk svörin þá ákvað ég bara að setja þetta hingað inn. En allavega, ég var að spá hvort við ættum að hittast um helgina eða í vikunni og deila pizzu og spila eða e-ð  Katrín getur kannski boðið okkur til sín, en sve eru einhverjir sem komast ekki um helgina, svo eigum við að stefna á þetta í vikunni? Hvað segiði, eruði til? En svo er ég líka til í að gera e-ð um helgina ef einhverjir ætla að gera e-ð  Kv. Jóhanna
»
01.01.2009 00:45:03 / heidrun
Gleðilegt nýtt ár stelpur mínar og takk fyrir það gamla  , vona að ég sjái ykkur meira á þessu ári en maður gerði 2008
»
24.12.2008 16:19:45 / frida
Gleðileg jól allar.
»
03.12.2008 10:45:06 / katrin
Sælar stelpur  Ég vildi bara deila því með ykkur að rokkhljómsveitin mín er komin á Youtube! Endilega kíkið á Youtube við tækifæri og hlustið á Ísland farsælda frón í fallegri útsetningu hljómsveitarinnar ÞÁSKI (Þórunn, Ásta, Sammi, Katrín, Ingunn) ásamt skemmtilegu myndbandi http://www.youtube.com/watch?v=VKgfQPkUDVA Það er ekkert mál að halda smá hitting heima hjá mér.. var það ekki örugglega 17. des. Það væri fínt ef þið mynduð mæta bara svona rúmlega 8 (ekki 9 heldur rúmlega 8, sem þýðir nokkrar mín. yfir). P.S. var einhver pæling að hafa pakkaskipti eins og í fyrra eða?
»
27.11.2008 21:19:30 / iris
Jæja hvað segiði? Erum við búnar að festa
17.des?
Og ætlar enginn að bjóða sig fram til að
halda þetta? Endilega kommentið
»
18.11.2008 22:51:45 / sigga
hæ stelpur  Ég og Gunni erum að spá í, í tilefni af því að Gunni á afmæli í Des og verður út á sjó þá, að bjóða heim í smá partý laugardaginn 22 nóv... ég veit að það eru alveg að koma próf hjá flestum en hver hefur ekki gott af því að líta aðeins upp úr bókunnum og sletta úr klaufunum í keflavíkinni  svo er líka hægt að kíkja bara á bíl ef að það er of mikið að gera í skólanum... en allir hafa allavega gott af því að standa aðeins upp frá bókunum Gisting er í boði fyrir þá sem vilja... við eigum stóra íbúð með nægt gólfpláss til að leggja sig á dýnu eða í sófa  Afmælisgjafir eru afþakkaðar enda á hann ekki afmæli alveg strax hehe  En gaman væri að sjá ykkur.. svo ég þurfi ekki að hangsa allt kvöldið ein með vinum hans Gunna hehe  kv. Sigga 
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|
|